Akureyringar hvattir til að hreinsa til í bænum

Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með brosi á vör. Starfsmenn Akureyrarbæjar munu ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum en gámar verða í hverfum bæjarins frá 6.-16. maí.  

Gámarnir verða á eftirtöldum stöðum:

  • Kaupangi
  • Hagkaup
  • Hrísalundi
  • Bónus við Kjarnagötu
  • Aðalstræti sunnan Duggufjöru
  • Bugðusíðu við leiksvæði
  • Verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð

Einnig er tekið við garðaúrgangi á gámasvæði við Réttarhvamm og á athafnasvæði Flokkunar við Ægisnes. Í samvinnu við hestamenn verða gámar fyrir rusl í hesthúsahverfum bæjarins frá 6.-16. maí.

Hvatning til dáða

Akureyrarbær hefur stundum fengið sæmdarheitið "fegursti bær landsins" en til þess að hann verðskuldi það þurfa allir að leggjast á eitt og taka til í sínum ranni. Það er samfélagsleg skylda okkar sem í þessum bæ búum að ganga vel um og koma í veg fyrir sóðaskap sem hlýst af uppsöfnuðu rusli, segir á vef bæjarins. Með því að hreinsa rusl, snyrta tré og runna í garðinum okkar hvetjum við aðra til að taka til hendinni. Stígum skrefinu lengra og tínum rusl utan lóðarmarka okkar, við næsta göngustíg og/eða á nálægu útivistarsvæði. Hreinsunardagur í götunni eða í hverfinu býður upp á skemmtilega samveru. Notum hugmyndaflugið og gerum tiltektina að skemmtilegu verkefni.

Opnunartímar gámasvæðis við Réttarhvamm

Yfir vetrartímann (16. ágúst til 15. maí):
Mánudaga til föstudaga kl. 13.00-18.00.
Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00-17.00.

Opið á sumrin (16. maí til 15. ágúst):
Mánudaga til föstudaga kl. 13.00-20.00.
Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00-17.00.

Nýjast