Akureyri og Valur skildu jöfn 24-24 í hörkuleik í N1-deild karla í handbolta í Höllinni á Akureyri í gærkvöld. Ljósmyndari Vikudags var á svæðinu og myndirnar frá leiknum má sjá hér að neðan.
Háskólinn á Akureyri gegnir lykilhlutverki við skipulagningu ráðstefnu sem ætlað er að vera stefnumótandi vettvangur verndunar líffræðilegrar fjölbreytni á norðurslóðum. Ráðstefnan ber heitið Arctic Biodiversity Summit og verður í Nuuk á Grænlandi í mars á næsta ári.
Vatnslitahátíð Íslands (Aurora Watercolour Festival) verður haldin 10.-15. september nk. á Akureyri. Efnt verður til ýmissa viðburða en þungamiðja hátíðarinnar er opnun sýningar 72 listamanna frá 21 þjóðlandi í Listasafninu á Akureyri sem stendur til 27. september. Þeir listamenn sem eiga verk á sýningunni koma m.a. frá Spáni, Póllandi, Perú, Svíþjóð, Mexíkó, Kasakstan og að sjálfsögðu frá Íslandi.
Glerárkirkja fagnar því að Arnhildur Valgarðsdóttir hafi verið ráðin til starfa sem tónlistarstjóri, organisti og kórstjóri kirkjunnar. Arnhildur hefur störf 1. október næstkomandi.
Við setningu á Mærudögum í gærkvöldi heiðraði forseti Íslands Halla Tómasdóttir, fyrir hönd Norðurþings, Frímann Sveinsson en hann var útnefndur bæjarlistamaður sveitarfélagsins.
Bjarni Þór Ævarsson, er ungur Akureyringur, matreiðslumeistari og stofnandi AllergyID — stafræns ofnæmiskorts sem hjálpar fólki með fæðuofnæmi að miðla ofnæmi sínu yfir tungumálahindranir en oft og tíðum getur verið snúið að koma til skila sé fæðuofnæmi að angra fólk.
21-28 til spanar til að leiða
Endurminning - Lokatónleikar 40 ára afmælishátíðar Sumartónleika í Akureyrarkirkju Andrew J. Yang leikur úrval píanóverka og frumflytur nýtt verk úr eigin smiðju.
Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram í einstöku umhverfi við Eyjafjörð.