Akureyri og Valur skildu jöfn 24-24 í hörkuleik í N1-deild karla í handbolta í Höllinni á Akureyri í gærkvöld. Ljósmyndari Vikudags var á svæðinu og myndirnar frá leiknum má sjá hér að neðan.
Hrafnagilsskóla hefur borist vegleg gjöf frá fyrirtækinu G V Gröfum ehf. en um er að ræða vandað þráðlaust hljóðnemakerfi og hleðslustöð. Þessi nýi búnaður kemur til með að stórbæta öll hljóðgæði á samverustundum skólans.
Rúnar Traustason, rekstrarstjóri Íslandspósts á Húsavík og slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og kjötiðnaðarmeistari leiðir M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í maí.
Það er ákall víða af Norðurlandi um að Akureyri taki hlutverk sitt sem leiðandi sveitarfélag alvarlega. Bæjaryfirvöld hafa misst augun af boltanum, bærinn er hægvaxandi og bæði íbúar og fyrirtæki hafa valið að leita sér að öðrum tækifærum í nágrannasveitarfélögum. Þessu þarf að snúa við. Sem fjölmennasta sveitarfélag landshlutans hefur Akureyri alla burði til að verða framúrskarandi staður til að búa á reka fyrirtæki og heimsækja.
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Akureyri fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi í hádeginu í dag í húsakynnum félagsins.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands,HSN á Akureyri tekur nú þátt í tilraunaverkefni sem miðar að því að minnka pappírsvinnu lækna með hjálp gervigreindar. Um er að ræða tólið Skríban, sem umbreytir tali læknis í skipulagðar læknanótur í rauntíma. Markmiðið er að losa lækna undan tímafrekri skýrslugerð svo þeir geti varið meiri tíma með skjólstæðingum sínum.
Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir tvennum Stabat Mater tónleikum nú á föstunni undir yfirskriftinni Mærin Mæra en það er tilvitnun í þýðingu Matthíasar Jochumssonar á ljóðinu; Stóð við krossin mærin mæra mændi á soninn hjartakæra.