Áheyrnarfulltrúar í fastanefndum á Akureyri

Á síðasta fundi bæjarstjórnar Akureyrar var samþykkt tillaga um tilnefningu áheyrnarfullltrúa þeirra framboða sem ekki eiga fulltrúa í fastanefndum bæjarins, samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum um áheyrnarfulltrúa. Um er að ræða 17 áheyrnarfulltrúa en til viðbótar á VG eftir að tilnefna sína fimm fulltrúa. Alls verða áheyrnarfulltrúar í fastanefndum bæjarins því 22 og samkvæmt upplýsingum Odds Helga Halldórssonar formanns bæjarráðs, er kostnaður vegna þess áætlaður 3-3,2 milljónir króna á ári.

Gert er ráð fyrir samtals um 170-180 fundum í fastanefndum bæjarins á ári og í flestum þeirra verða tveir áheyrnarfulltrúar en í einhverjum tilvikum þrír. Sigurður Guðmundsson, oddviti Bæjarlistans, greiddi atkævði gegn tillögunni í bæjarstjórn en fjórir þeirra áheyrnarfulltrúa sem tilnefndir og samþykktir voru, eru frá Bæjarlistanum.

 

Nýjast