Áhersla lögð á að stytta ferðatíma innan landsvæða í samgönguáætlun

Innanríkisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi tólf ára samgönguáætlun fyrir árin 2011 til 2022 og fjögurra ára samgönguáætlun 2011 til 2014. Tólf ára samgönguáætlun hefur að geyma stefnumótun en fjögurra ára áætlunin er verkefnaáætlun með fjárhagsramma. Tekjur og framlög til verkefna tólf ára samgönguáætlunar eru alls 296 milljarðar króna. Stærsta hluta þess fjármagns á að verja til vegamála eða 240 milljörðum.

Áherslur innanríkisráðherra

Í samræmi við lög lagði innanríkisráðherra stefnu sína í helstu málaflokkum, auk fjárhags- og tímaramma, fyrir samgönguráð með bréfum dagsettum 18. maí 2011 og 5. september 2011. Helstu áherslur innanríkisráðherra voru: Félagshagfræðileg greining við forgangsröðun verkefna, efling almenningssamgangna, mælanleg markmið, núllsýn í umferðaröryggismálum, loftslagsmál, hlutverk samgangna við tengingu landsvæða og landsins alls, samþætting við aðrar áætlanir ríkisins, samgöngukostnaður heimilanna, greiðfærni og áreiðanleiki samgangna og jákvæð byggðaþróun.

Með nýjum áherslum er hugsað um verkefni fyrir landið í heild á öllum sviðum samgangna; á landi, í lofti og á sjó. Lögð er áhersla á verkefni á landsvæðum sem í dag búa við lakastar samgöngur. Einnig er nú aukin áhersla lögð á almenningssamgöngur. 

Stefnumótandi samgönguáætlun fyrir árin 2011-2022

Stefnumótandi tillaga tólf ára áætlunar skiptist í þrjá hluta. Fyrsti hlutinn er stefnumótun þar sem sett er fram stefna um hvert hinna fimm lögbundnu markmiða, þ.e.a.s. um greiðar samgöngur, hagkvæmar samgöngur, umhverfislega sjálfbærar samgöngur, öruggar og um samgöngur sem stuðla að jákvæðri byggðaþróun. Í öðrum hlutanum er grunnnet samgangna skilgreint og í þriðja hlutanum er sett fram áætlun um fjáröflun, útgjöld og helstu framkvæmdir. Þá fylgir tillögunni ítarleg greinargerð. 

Helstu breytingar frá fyrri áætlun er aukin áhersla á umhverfismál, hagkvæmni samgangna, samspil samgangna og skipulags, jafnræði samgöngumáta auk áframhaldandi áherslu á öryggi vegfarenda. Þá er áhersla á að bæta greiðfærni þar sem tengingum við aðra landshluta, jafnt sem innan landsvæða er ábótavant, s.s. á sunnanverðum Vestfjörðum. Í stað markmiðs um skemmri ferðatíma til Reykjavíkur er nú lögð áhersla á að stytta ferðatíma innan landsvæða að næsta atvinnu- og þjónustukjarna.

Verkefnaáætlun fyrir árin 2011-2014

Verkefnaáætlunin skiptist í sjö kafla. Í fyrstu fimm köflunum eru flugmálaáætlun, siglingamálaáætlun, vegáætlun, áætlun Umferðarstofu og umferðaröryggisáætlun. Þar er sundurliðað og gerð grein fyrir áætluðum tekjum og gjöldum hvers árs. Í sjötta og sjöunda kafla er síðan gerð grein fyrir almennum samgönguverkefnum sem tilgreind eru í stefnumótun áætlunarinnar og framkvæmd verða á tímabilinu. Verkefnin eru tilgreind eftir markmiðum og ábyrgð á framkvæmd þeirra úthlutað. 

Við undirbúning og vinnslu áætlananna var haft ítarlegt samráð við sveitarstjórnir, almenning, Samtök atvinnulífsins, auk þess sem haldið var samgönguþing sl. vor. Mat á umhverfisáhrifum áætlunarinnar var unnið lögum samkvæmt.

Rannsóknarverkefni

Á árunum 2011–2022 verður unnið að rannsóknar-, úttektar- og stefnumótunarverkefnum sem falla undir fimm meginmarkmið samgönguáætlunar. Verkefnin eru tilgreind í stefnumiðum og áherslum áætlunarinnar. Verkefnin eru liður í því að framfylgja samgönguáætlun á sama hátt og vinnsla framkvæmda-, viðhalds- og rekstrarverkefna. Á hverri fjögurra ára verkefnaáætlun eru tiltekin þau verkefni sem vinna skal á viðkomandi tímabili samgönguáætlunar og gerð er grein fyrir ábyrgðar- og samstarfsaðilum. Vinnu- og fjárframlög í tilgreind rannsóknar-, úttektar- og stefnumótunarverkefni koma frá samgöngustofnunum og samstarfsaðilum í samræmi við ábyrgð og hlutverk í hverju verkefni, samkvæmt nánara samkomulagi þeirra á milli. 

Helstu verkefni

Meðal verkefna sem lokið verður á gildistíma 12 ára samgönguáætlunar og kosta yfir einn milljarð króna er ný brú yfir Hornafjarðarfljót ásamt vegagerð, ný brú yfir Ölfusá norðan Selfoss og breikkun vegar milli Selfoss og Hveragerðis og um Hellisheiði, vegarkafli á sunnanverðum Vestfjörðum og fjölmörg verkefni á Suðvesturlandi sem tengjast bættu umferðarflæði. Þá verður gert átak í lagningu bundins slitlags á tengivegi um land allt fyrir tæpa 6 milljarða króna á áætlunartímabilinu.

Meðal verkefna sem hefja á má nefna breikkun Vesturlandsvegar, nýjan veg um Dynjandisheiði, Suðurfjarðarveg og Axarveg. Gert er ráð fyrir að lokið verði við gerð Norðfjarðarganga árið 2018, Dýrafjarðargöng árið 2022 og Hjallahálsgöng einnig 2022 (ef láglendisleið verður ekki fyrir valinu), segir í fréttatilkynningu.

 

 

 

Nýjast