Ágúst er 37 ára gamall vélaverkfræðingur og lauk mastersnámi við University of British Columbia í Kanada árið 2001. Ágúst hefur m.a. stundað rannsóknir í varmafræðum við University of British Columbia og unnið hjá verkfræðistofu VGK m.a við verkefni tengd orkuvinnslu og nýtingu. Frá árinu 2005 var Ágúst framkvæmdastjóri hjá Brim hf. Ágúst er Akureyringur. Hann er kvæntur Evu Hlín Dereksdóttur verkfræðingi og eiga þau tvær dætur. Þetta kemur fram á vef Norðurorku.