Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og verður tekið mið af líkamlegri getu þátttakenda. „Að veiða er að vona". Á staðnum verða einnig félagar úr Samhjálp kvenna, félagi til stuðnings konum sem fengið hafa brjóstakrabbamein og starfsmaður frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Gert er ráð fyrir þátttöku fjórtán kvenna. Gist er í tveggja manna herbergjum og á boðstólum verður ljúffengur og hollur matur í anda krása úr matreiðslubókinni Bragð í baráttunni. Ferðin hefst snemma að morgni 24. maí og lýkur að kveldi 25. maí og tekur tvo daga. Þátttakendur fara á eigin bílum en mælst er til að þær hópi sig saman í bíla og deili eldsneytiskostnaði.
Á bökkum Sogsins gefst konum tækifæri til að gleyma sér í kyrrð og ró í stórbrotinni náttúrufegurð og sækja og gefa styrk til kvenna með svipaða reynslu og eru tilbúnar að miðla af sinni reynslu. Síðast en ekki síst er tilgangurinn sá að njóta gleðinnar sem því fylgir að kasta flugu, renna fyrir fisk, vaða tært vatn Sogsins og endurnærast á sál og líkama. Þetta er í annað sinn sem Kastað til bata verkefnið er sett upp. Í fyrra voru þátttakendur sérlega ánægðir og halda þær enn hópinn. Þær sögðu m.a. „Þetta var sannkallað ævintýri frá upphafi til enda. Skipulagið var frábært, maturinn hollur og góður, leiðsögumennirnir voru stórkostlegir og allur aðbúnaður til fyrirmyndar. Frábær hreyfing fyrir „brjóstakonur" og dásamleg samvera í fallegu umhverfi". Konur sem hafa hug á að taka þátt í Kastað til bata eru beðnar að senda umsókn til Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins fyrir 4. maí. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Krabbameinsfélagsins, www.krabb.is. Í Ráðgjafarþjónustunni eru veittar nánari upplýsingar í síma 540-1900. Þátttakendur á hittast á undirbúningsfundi í Ráðgjafarþjónustunni fyrir ferðina.