"Starfsmenn voru að jafnaði um 130 á árinu en auk þess voru hjá okkur 36 skólakrakkar í sumar." Ágúst Torfi segir að reksturinn hafi gengið vel á fyrri hluta ársins 2010 en að hann hafi verið erfiðaðri síðari hlutann vegna minnkandi veiðiheimilda og styrkingar gengis krónunnar.
"Varðandi breytingar á nýju ári á rekstrinum og starfseminni þá er skemmst frá því að segja að við vitum ekki hvaða breytingar stjórnvöld vilja ráðast í og þar af leiðandi ekki hvaða áhrif þær hafa á rekstrarumhverfi okkar. Það ríkir mikil óvissa um áform stjórnvalda og á meðan að svo er bíðum við í óvissu. Sé tekið mið af stefnu stjórnarflokkanna í málefnum sjávarútvegsins þá munu þær breytingar, ef ná fram að ganga, að öllum líkindum veikja stöðu landvinnslu hér á Akureyri," segir Ágúst Torfi.