Bæjarbúar og gestir eru hvattir til að heimsækja síðuna www.visitakureyri.is og skoða þar viðburðadagatal
Aðventuævintýris. Þar má finna upplýsingar um jólatónleika hinna ýmissu kóra sem starfa á Akureyri,
jólamarkað, upplestur úr nýútkomnum jólabókum, jólaannir í Laufási, jólaball á Ráðhústorgi,
leiksýningar, Jólagesti Björgvins, Frostrósartónleika, Aðventuveislu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, jólastemningu í
Hrísey, jólasveinana syngja á gömlu KEA svölunum, Lúsíudaginn og þegar kirkjukórarnir syngja jólin inn að gömlum sið, svo
dæmi séu tekin. Bæjarbúar og gestir eru hvattir til að nýta sér á aðventunni aukinn opnunartíma Minjasafnsins á Akureyri og
leikfangasýningarinnar "Leikföng frá liðinni öld" sem staðsett er í Friðbjarnarhúsi. Á báðum stöðum er opið fram
að jólum alla daga frá 13-16.
Hægt að nálgast á www.visitakureyri.is undir Aðventuævintýri upplýsingar um opnunartíma á aðventunni og yfir sjálfa
jólahátíðina í miðbænum og á Glerártorgi. Einnig hjá sundlaugunum, Hlíðarfjalli, gisti- og veitingastöðum og
fl.