Una Torfa syngur ljúfsár lög um ástina í Hofi

Söngvaskáldið Una Torfadóttir heldur magnaða tónleika í Hofi í tilefni Listasumars fimmtudaginn 29. júní kl. 17.

Una, sem er fædd árið 2000, semur og spilar ljúfsár lög um ástina og lífið á íslensku. 

Á liðnu ári hefur Una komið víða fram, sem dæmi má nefna tónleika hennar í Iðnó á Iceland Airwaves, framkomur í Vikunni með Gísla Marteini við þrjú tilefni og fjölmörg önnur gigg. Una Torfa hlaut Kraumsverðlaunin fyrir plötuna sína „Flækt og týnd og einmana.“

Una kemur ýmist fram ein, í dúett með rafmagnsgítarleikara eða með hljómsveit og tónleikar verða að sögustund. Hér kemur hún fram ásamt gítarleikaranum Haffa Ceasetone.

Frítt inn og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.


Athugasemdir

Nýjast