Þingeysk lög á þremur afmælistónleikum

Ísak Már Aðalsteinsson hefur undirbúið tónleikana.
Ísak Már Aðalsteinsson hefur undirbúið tónleikana.

Norðurþing fagnar 20 ára afmæli sínu með þrennum ókeypis fjölskyldutónleikum á Kópaskeri, Raufarhöfn og Húsavík dagana 24.–26. nóvember. Hljómsveit með Ágúst Þór Brynjarsson í broddi fylkingar flytur lög og texta eftir þingeyskt tónlistarfólk. Meðal laga sem stefnt er að því að flytja eru „Eina nótt“ og „Dýrið gengur laust“, bæði við texta Jónasar Friðriks Guðnasonar.

Tónleikaröðin ber heitið „Tónar milli staða – 20 ára afmæli Norðurþings“. Ísak Már Aðalsteinsson tók að sér undirbúninginn í lok október í samstarfi við fjölmenningarfulltrúa Norðurþings og sér um tónlistarlega stjórn. Hann segir að allir í hljómsveitinni tengist sveitarfélaginu og hafi verið áberandi í tónlistarlífi svæðisins undanfarin ár. Sami hópur flytur dagskrána á öllum þremur stöðunum.

„Ég vildi velja lög og texta úr öllu sveitarfélaginu og reyna að finna eitthvað við hæfi allra aldurshópa,“ segir Ísak Már í svörum við fyrirspurn Vikublaðsins. Á dagskránni verða meðal annars lög eftir Þorgeir Brimi, Hafstein Hjálmarsson, Guðna Braga og Gloríu. Ágúst Þór ætlar einnig að spila nokkur af sínum uppáhaldslögum.

Textar Jónasar Friðriks fá sinn sess á tónleikunum. „Mig langaði til að leyfa fólki að heyra þekktari texta Jónasar í bland við eitthvað sem yngri kynslóðin þekkir kannski ekki,“ segir Ísak Már.

Tónleikarnir hefjast allir kl. 19.00 og standa í um klukkustund. Fulltrúi Norðurþings flytur stutt ávarp í upphafi. Súpa og brauð verða til sölu fyrir tónleikana á öllum þremur stöðunum.

  • 24. nóvember – Hnitbjörg á Raufarhöfn
  • 25. nóvember – Skólahúsið á Kópaskeri
  • 26. nóvember – Fosshótel Húsavík

Nýjast