Svartar fjaðrir í Hofi

Helga Kvam (t.v.) og Þórhildur Örvarsdóttir. Ljósmynd/Auðunn Níelsson.
Helga Kvam (t.v.) og Þórhildur Örvarsdóttir. Ljósmynd/Auðunn Níelsson.

Svartir fjaðrir með Helgu Kvam og Þórhildi Örvarsdóttur í tali og tónum verða á dagskrá í Hofi í kvöld, fimmtudaginn 31. október nk. kl. 20:00. Um þessar mundir eru 100 ár liðin frá útgáfu Svartra fjaðra, fyrstu ljóðabókar Davíðs Stefánssonar.

Helga og Þórhildur munu í þessari tónleikadagskrá segja frá Davíð með áherslu á ljóðin úr Svörtum fjöðrum og vefa saman ferðalag í tali og tónum. Frumflutt verða ný lög eftir Helgu og Þórhildi sem samin eru sérstaklega að þessu tilefni við ljóð úr Svörtum fjöðrum. Helga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir hafa í tvígang verið hluti af stuttum stofutónleikum í Davíðshúsi og áhugi á áframhaldandi vinnu með verk hans kviknaði þar.

Helga og Þórhildur ferðuðust um landið sumarið 2018 og fluttu dagská um skáldkonuna Huldu þar sem sagt var frá lífi hennar og störfum, ljóð hennar flutt og tónlist við ljóð hennar.

Miðasala á Svartar fjaðrir í Hofi eru á www.mak.is en einnig er selt við innganginn.


Athugasemdir

Nýjast