Styrktartónleikar á Græna hattinum

Í tilefni alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins í dag, fimmtudaginn 10. október verða haldnir tónleikar til styrktar Grófinni geðverndarmiðstöð á Græna hattinum. Grófin, sem er rekin af frjálsum félagasamtökum, er virknimiðstöð fyrir fólk sem glímir við geðrænan vanda eða félagslega einangrun og vill valdeflast og vinna í sínum bata. „Í anda valdeflingar, batahugsunar og jafningjanálgunar stendur Grófin fyrir ýmiss konar hópastarfi og virknitilboðum fyrir notendur auk fræðsluviðburða fyrir almenning og fræðsluerinda í skólum fyrir ungmenni. Á tónleikunum munu koma fram fjölmargar hljómsveitir og trúbadorar auk tæknimanna en allt þetta góða fólk ætlar gefa vinnuna sína,“ segir í tilkynningu.

Segir ennfremur að miðaverði verði stillt í hóf svo að sem flestir eigi þess kost að koma og njóta. Tónleikarnir hefjast kl 21:00 en húsið opnar klukkutíma fyrr. Miðarnir fást á vefsíðunum grænihatturinn.is og tix.is. Þeir sem ekki komast á tónleikana en vilja styrkja Grófina geta lagt inn á styrktarreikning Grófarinnar 565-14-405078, kt. 430316-0280.

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór heldur tónleika á Græna hattinum laugardaginn 12. október. Nú eru 10 ár síðan hann gaf út sitt fyrsta lag Hlið við Hlið og að því tilefni ætlar Friðrik að troða uppá Græna hattinum ásamt hljómsveit sinni. Þar mun Friðrik taka öll sín helstu lög á þessum 10 ára ferli Tónleikarnir hefjast kl. 22.00 en uppselt er á tónleikana.


Athugasemdir

Nýjast