Skrudduskrúðgangan

Sumarlistamaður Akureyrar, Egill Andrason með spennandi gjörning í tilefni Bíladaga.

Veist þú hvað er að gerast inn í bílunum í kringum þig? Kíkir þú stundum skömmustulega á rauðu ljósi inn um bílglugga næsta manns? Tja, nú skulum við afnema skömmina.

Skrudduskrúðgangan verður í göngugötu Akureyrar klukkan 17 föstudaginn 16. júní. Þá fá áhorfendur (sem höfundar mæla með að sitji úti í happy með bjór, vatn eða kaffi í hönd) svo sannarlega að fylgjast grannt með bílunum sem keyra göngugötuna.

Komdu og upplifðu skrudduskrúðgönguna og kynntust fjölskrúðugu lífi bíla.

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 16. júní
Tímasetning: kl. 17
Staðsetning: Öll göngugatan
Aðgangseyrir: Frítt inn
Segir í tilkynningu


Athugasemdir

Nýjast