Skálmöld fagnar sjöttu breiðskífu sinni í Hofi

Þungarokkshljómsveitin Skálmöld heldur útgáfutónleika í Hofi þann 15. september en miðasala hófst á hádegi í gær.

Skálmöld heldur tvenna útgáfutónleika til þess að fagna 6. breiðskífu sinni, Ýdalir. Líkt og fyrri verk sveitarinnar er platan samhangandi saga sem rakin verður frá upphafi til enda, textunum varpað upp á tjald ásamt myndum og ekkert til sparað. Ýdalir segir söguna af norræna guðinum Ulli og átökum hans við orminn Níðhögg. Þá spila örlaganornirnar, Urður, Verðandi og Skuld, stórt hlutverk ásamt fleiri vættum. Eftir hlé flytur sveitin úrval eldri verka. Greint er frá þessu á heimasíðu MAk

Skálmöld nýtur sín hvergi betur en við þessar aðstæður þar sem vítt er til veggja og saman fara hljóð og mynd. Í kjölfarið halda strákarnir svo í Evróputúr til þess að fylgja plötunni eftir. 

Selt verður í sæti og tónleikarnir henta öllum aldri. Yngri áhorfendur og viðkvæmari skyldu muna eftir heyrnarhlífurm. 

„Til þess að fyrirbyggja allan misskilning skal áréttað að tónleikarnir fara fram í Háskólabíói í Reykjavík og Hofi á Akureyri, ekki í hinu ástsæla félagsheimili Ýdölum í Aðaldal. Þar er vissulega gott að vera – en við geymum það þar til síðar.“ segir í tilkynningunni. 


Athugasemdir

Nýjast