Óska eftir lýðheilsustyrk fyrir eldri borgara

Áhersla verði lögð á að efla starfsemi Virkra efri ára sem er fjölbreytt heilsueflandi verkefni fyri…
Áhersla verði lögð á að efla starfsemi Virkra efri ára sem er fjölbreytt heilsueflandi verkefni fyrir eldri borgara Mynd akureyri.is

Stjórn Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) og öldungaráð Akureyrarbæjar hafa beint því til  bæjaryfirvalda að komið verði á lýðheilsustyrk fyrir íbúa bæjarins 67 ára og eldri.

Markmið styrksins væri að hvetja eldri íbúa bæjarins til þátttöku í heilsueflandi íþrótta- og tómstundastarfi og auka þannig lífsgæði þeirra með bættri heilsu.

Slíkur styrkur er í dag veittur í mörgum sveitarfélögum og kemur þeim vel sem stunda hreyfingu og/eða aðra heilsueflingu. Styrkurinn verði veittur einstaklingum gegn framvísun reiknings frá þeim viðurkenndu aðilum sem veita slíka þjónustu og samið verði við.
Reglur um styrk af þessu tagi geta verið í líkingu við frístundastyrk barna og unglinga.

Fræðslu- og lýðheilsuráð fór yfir erindið en að svo búnu leggur það áherslu á að efla starfsemi Virkra efri ára sem er fjölbreytt heilsueflandi verkefni fyrir eldri borgara. Fram kemur í bókun ráðsins að erindið verði tekið upp að nýju við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.


Athugasemdir

Nýjast