NÝTT UPPHAF -Það er okkar að fljúga

Nýtt Upphaf auglýsir eftir 11 einstaklingum sem hafa áhuga á að taka þátt í einhverju sem aldrei áður hefur verið framkvæmt á Íslandi.

Nýtt Upphaf er nýr og ferskur andblær í komandi sveitarstjórnarkosningar sem haldnar verða á Akureyri árið 2026. Við erum byrjuð að leita að fólki. 

Í fyrsta sinn á Íslandi verður hægt að kjósa einstaklinga í stað flokka.

Nýtt Upphaf er ekki flokkur. Það er skráð framboð sem er ekkert annað en lítið millistykki fyrir fólk sem langar að fara fram af eigin verðleikum.

Hver umsækjandi setur fram sína stefnu og sín loforð um vinnu.   Stefnu sem hver og einn ætlar að vinna með og lofar að leggja vinnu við sitt kjörtímabil.   Loforð og stefnu sem enginn flokkur segir hann þurfa að styðja.   Engin flokksvinna. Engin flokkakosning. Ekkert samráð. Ekkert flokkapot. Engin pólítík. 

Nýtt Upphaf mun halda vel utan um hópinn sinn og minna meðlimi sína ávallt á að taka sjálfstæðar ákvarðanir.

 

Ef þú vilt fá nánari upplýsingar um starfið þá finnur þú okkur á Facebook þar sem upplýsingar um tengilið koma fram.

 

Gildi flokksins eru

Kurteisi - Virðing – Áræðni – Vegferð

Það er okkar að fljúga.

 

Fh. Nýs Upphafs

Ásgeir Ólafsson Lie

 


Athugasemdir

Nýjast