Mjög góð þátttaka í kvennaverkfalli á Húsavík og Akureyri

Frá útifundinum á Ráðhústorginu á Akureyri í morgun   Mynd  MÞÞ
Frá útifundinum á Ráðhústorginu á Akureyri í morgun Mynd MÞÞ

Konur og kvár á Akureyri  og á Húsavik létu sig ekki vanta á baráttufundi sem haldnir voru  í dag og má með sanni segja að góður andi hafi verið ríkjandi, samstaðan algjör.  

Á Akureyri var safnast saman á Ráðhústorgi þar sem aðalræðurmaður var Ásta F. Flosadóttir - Höfða í Grýtubakkahreppi sviðsstjóri hjá Þingeyjarsveit. Tónlistaratriði voru  og almennur söngur.  

Á Húsvík var komið saman í fundarsal Stéttarfélagana og er áætlað að u.þ.b 300 konur hafi mætt.  Aðalræðu dagsins flutti Ósk Helgadóttir vara formaður Framsýnar.  

Myndirnar segja meira en mörg orð.

 

 


Athugasemdir

Nýjast