Minningarmót um Gylfa Þórhallsson

Gylfi Þórhallsson.
Gylfi Þórhallsson.

Rúmlega eitt ár er liðið frá andláti Gylfa Þórhallssonar, heiðursfélaga Skákfélags Akureyrar, en Gylfi var um áratuga skeið einn öflugasti skákmeistari félagsins. Til að heiða minningu Gylfa Þórhallssonar verður efnt til minningarmóts dagana 21-24. maí nk. Telft verður í Menningarhúsinu Hofi og hefst taflið kl. 19.00 á föstudagskvöldið.

Þegar hafa um 40 keppendur skráð sig til þátttöku, þar á meðal stórmeistararnir Jóhann Hjartarson og Þröstur Þórhallsson. Gera má ráð fyrir að endanlegur fjöldi þátttakenda verði milli 60 og 70.

„Þessi mikla þátttaka sýnir vel þann sess sem minningin um Gylfa Þórhallsson hefur meðal skákáhugamanna,“ segir í tilkynningu. Hann varð skákmeistari Akureyrar alls 13 sinnum, skákmeistari Skákfélags Akureyrar níu sinnum og jafnoft Skákmeistari Norðlendinga. Gylfi var um árabil burðarásinn í félagsstarfi skákmanna; hann var formaður Skákfélags Akureyrar í 14 ár og sat í stjórn félagsins í nærfellt þrjá áratugi.  Um áratuga skeið var hann fyrirliði félagsins á Íslandsmóti skákfélaga og telfdi fleiri skákir í þeirri keppni en nokkur annar.

„Þá var hann eftirminnilegur leiðtogi í barna- og unglingastarfi hér í bænum og kom mörgum ungu áhugafólki til þroska í skáklistinni. Fyrir hans tilverknað tókst að laða ungt fólk til liðs við félagið hafa staðið sig vel á og unnið til margra titla. Skákfélag Akureyrar og samfélagið allt stendur því í mikilli þakkarskuld við Gylfa Þórhallsson,“ segir ennfremur í tilkynningu. 

 


Athugasemdir

Nýjast