Menntaskólinn á Akureyri Níu nýstúdentar brautskráðir

Nýstúdentar 20. desember 2023. Á myndina vantar tvo stúdenta       Mynd ma.is
Nýstúdentar 20. desember 2023. Á myndina vantar tvo stúdenta Mynd ma.is

Undanfarin misseri hefur skólinn boðið upp á sveigjanleg námslok og því hafa allmörg lokið stúdentsprófi á öðrum tíma en 17. júní, í ágúst eða í desember. Þetta hafa þó verið fáir nemendur í hvert skipti en nú brá svo við að níu nemendur alls luku stúdentsprófi.

Að því tilefni var haldin lítil brautskráningarathöfn í Gamla skóla og nýstúdentarnir mættu ásamt fjölskyldum sínum. Boðið var upp á veitingar og var þetta afar notaleg og gleðileg stund. Við óskum nýstúdentunum innilega til hamingju.

Sjö þeirra náðust á mynd.

 

Það er heimasíða Menntaskólans á Akureyri sem segir frá


Athugasemdir

Nýjast