Magnað - Tæp hálf öld á milli aðstoðardómara!

Dómaratríóið Stefán til vinstri og Leyla Ósk til hægri Aðalsteinn fyrir miðju.
Dómaratríóið Stefán til vinstri og Leyla Ósk til hægri Aðalsteinn fyrir miðju.

Í frétt á vef Knattspyrnusambands Íslands er að finna þessa skemmtilegu frétt.   

,,Í leik á Kjarnafæðismótinu í knattspyrnu nú á dögunum var heldur betur áhugavert dómarateymi að störfum.  

Aðalsteinn Tryggvason var aðaldómari leiksins og honum til aðstoðar voru þau Stefán Aðalsteinsson og Leyla Ósk Jónsdóttir. Það sem gerir þetta dómarateymi áhugavert er að tæp hálf öld er á milli aðstoðardómaranna. Leyla Ósk er nýorðin 14 ára og var hún að dæma sinn þriðja leik í Kjarnafæðismótinu og á hún svo sannarlega framtíðina fyrir sér í dómsgæslu.

Stefán verður 63 ára á árinu og er hann hvergi nærri hættur að dæma. Stefán hefur dæmt frá 17 ára aldri eða í 47 ár og telur hann leikina sína komna yfir 1500 talsins!  Þegar Leyla fæddist, árið 2009, var Stefán búinn að dæma í 31 ár!

Hjá Leylu og Stefáni er dómgæsla í fjölskyldunni því Páll, sonur Stefáns, er einnig dómari og faðir Leylu, Zakír Jón Gasanov, er það líka.“

Það hlýtur að láta nærri að um einsdæmi sé að ræða amk hér á landi að dómari hafi dæmt rúmlega 1500 leiki á 47 ára tímabili og að aldursbilið í dómaratríóinu sé með þessum hætti.

 


Athugasemdir

Nýjast