Listasafnið á Akureyri fagnar 30 ára afmæli

Listasafnið á AKureyri
Listasafnið á AKureyri

Helgina 25.-27. ágúst fagnar Listasafnið á Akureyri 30 ára afmæli. Afmælishátíðin hefst í sal 11 á föstudagskvöldinu kl. 22 með tónleikum tékkneska oktettsins HLASkontraBAS. Blásið verður til mikillar listahátíðar á laugardaginn kl. 15 þegar fimm nýjar sýningar verða opnaðar í safninu. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands flytur ávarp, einnig Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Hlynur Hallsson safnstjóri.

Á samsýningunni Hringfarar má sjá verk Guðjóns Ketilssonar, Sólveigar Aðalsteinsdóttur, Elsu Dórótheu Gísladóttur og Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur, en einnig verða opnaðar einkasýningar með verkum Brynhildar Kristinsdóttur, Drafnar Friðfinnsdóttur, Melanie Ubaldo og Katrínar Jósepsdóttur – Kötu saumakonu. Allar sýningarnar hlutu styrk úr Safnasjóði.

Í tilefni dagsins verður fjörmikil dagskrá á Listasafninu til kl. 23 á laugardagskvöld með listamannaspjalli, tónleikum, gjörningi, uppákomum og bollaleggingum um sýningar.

Á sunnudaginn verður boðið upp á leiðsögn á klukkutíma fresti um sýningar safnsins. Dagskráin hefst kl. 11 með fjölskylduleiðsögn og smiðju um samsýningu norðlenskra myndlistarmanna, Afmæli, sem opnuð var fyrr í sumar og lýkur með leiðsögn um sýningu Drafnar Friðfinnsdóttur, Töfrasproti tréristunnar, kl. 16. Ókeypis er inn á alla viðburði Listasafnsins um afmælishelgina.


Athugasemdir

Nýjast