Kontrabassinn hefur sótt í sig veðrið sem einleikshljóðfæri

Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari flytja dagskrá sem þau…
Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari flytja dagskrá sem þau kalla “Hljóðs bið ek allar helgar kindir”. mynd/aðsend

Sunnudaginn 31. október kl 16 verða tónleikar á vegum Tónlistarfélags Akureyrar í Hömrum í Hofi. Þá leika Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari dagskrá sem þau kalla “Hljóðs bið ek allar helgar kindir”

Þórir og Ingunn tefla fram þessari óvenjulegu blöndu hljóðfæra í verkum sem ýmist eru samin fyrir þessa samsetningu eins og Rhapsodia Þórðar, Völukvæði Árna og Fantasia Bottesinis eða Gradus ad Profundum sem samið er fyrir einleiksbassa og Kol Nidrei sem og Epigrammák sem eru aðlöguð þessum hljóðfærum. Kontrabassinn hefur sótt í sig veðrið undanfarna áratugi sem einleikshljóðfæri en verður að teljast enn frekar óþekkt í íslenskri tónlistarflóru. Ingunn og Þórir vilja bæta úr því en samstarf þeirra hófst árið 2012 þegar þeim var boðið að spila á alþjóðlegri ráðstefnu kontrabassaleikara í Kaupmannahöfn.

 Ókeypis er fyrir tónlistarnemendur á tónleikana.

Miðasala í Hofi,  á mak.is eða tix.is

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði, Menningarfélagi Akureyrar og Akureyrarbæ.

smellið gif


Athugasemdir

Nýjast