Hildur Eir gefur út ljóðabókina Meinvarp

Hildur Eir Bolladóttir var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna árið 2017 fyrir bókina Hugrekki – saga af …
Hildur Eir Bolladóttir var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna árið 2017 fyrir bókina Hugrekki – saga af kvíða. Mynd/ Þröstur Ernir

Á morgun, fimmtudag kemur út ljóðabókin Meinvarp eftir séra Hildi Eir Bolldóttur, prest í Akureyrarkirkju.

Hildur hefur áður gefið út bókina Hugrekki – saga af kvíða sem kom út árið 2016 og ljóðabókina Líkn árið 2019. Sú fyrrnefnda var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2017.

„Hildi Eiri lætur einkar vel að fjalla um erfið mál. Að þessu sinni lýsir hún af einlægni, næmni og húmor glímu sinni við krabbamein og þeim tilfinningum sem fylgja átökunum: Sársauka og sorg en líka gleði, trú, von og sátt,“ segir í tilkynningu frá Vöku – Helgafelli, útgefanda bókarinnar.

Tungl í fyllingu
eða sól sem sest við sjóndeildarhring
eða skvapkennt andlit á sterum
 
hvítur blettur á dökkskyggðri mynd
eins og fugladrit á framrúðu bíls
nýorpið mein í lifur
 
Sena kynnir:
Krabbamein með comeback


Athugasemdir

Nýjast