Hetfield píanó prójekt frumflutt í Svarta kassanum

Þann 8. september stendur gímaldin fyrri tónlistarviðburði í Svarta kassanum, Hofi, undir yfirskriftinni Hetfield píanó próekt. Um er að ræða 10 laga frumflutning, sem hefur verið sérstaklega útsett fyrir tilefnið. Þetta er í senn formalískt tilraunaverkefni og skemmtidagskrá, og unnið með samruna svokallaðrar nútímalegri takttónlistar (beat music) og eilítið eldri forma síbreytilegra taktskipana.

Dagskrá hefst klukkan 20.00 og ásamt gímaldin leikur Pálmi Sigurhjartarson undir á píanó.

Um er að ræða tilvistar- og aðferðafræðilega raun um eðli tónlista. Getur hnitanetaður og óskeikandi metalgítarriþmi Jamesar Hetfields fundið samleið með flæðandi, síbreytilega svarandi og ofurdínamísku klassísku píanói? gímaldin hyggst svara því með 10 nýjum sönglögum sérstaklega útsettum fyrir þetta form. Pálmi Sigurhjartarson sér um undirleik á píanó.

gímaldin er pródúsent og fjölhljóðfæraleikari sem hefur komið fram og gefið út tónlist um árabil, bæði einn sem gímaldin og líka með ýmsum hljómsveitum, og dúettum. Í tónlist byrjaði hann sem heavy metal gítarleikari og hefur lengi verið stefnan að reyna að enda ferilinn í einhverskonar metal - til að fullkomna hringferlið.

Pálmi Sigurhjartarson hefur verið starfandi sem atvinnutónlistarmaður síðan 1984 og tekið þátt í gerð fjölda hljómplatna, sem hljóðfæraleikari, útsetjari, upptökustjóri, lagahöfundur og söngvari. Þá hefur hann einnig starfað sem hljómsveitar- og tónlistarstjóri í sjónvarpi, útvarpi og leikhúsi, meðleikari hjá fjölda listamanna og unnið við tónlistarkennslu.

Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI listsjóð sem er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningafélags Akureyrar.

 


Athugasemdir

Nýjast