Hátíðartónleikar með Valdimar á Græna hattinum

Valdimar Guðmundsson
Valdimar Guðmundsson

Valdimar Guðmundsson heldur jólatónleika á Græna hattinum um helgina, föstudaginn 20. desember og laugardaginn 21. desember. Hljómsveit hans, Valdimar, hefur gert garðinn frægan undanfarin ár og þar að auki státar hann af glæsilegum sólóferli. Nú hefur Valdimar sett saman hljómsveit með valinn mann í hverri höfn sem hefur fengið nafnið Fjölskylda.

Mætti því segja að Valdimar og Fjölskylda bjóði til hátíðartónleika á Græna hattinum, þar sem engu verður til sparað og leikin verða uppáhalds jólalög Valdimars í bland við eigið efni með hátíðarbrag.  „Búast má við hugljúfum en einnig kraftmiklum tónleikum, sem enginn ætti að missa af,“ segir í tilkynningu. Húsið opnar kl. 21:00 en tónleikarnir hefjast kl. 22:00 bæði kvöldin.


Athugasemdir

Nýjast