Gríðarleg breyting til hins betra við öll björgunarstörf

Maron Pétursson deildarstjóri Slökkviliðsins á Akureyri við stigabíla slökkviliðisins, þann gamla og…
Maron Pétursson deildarstjóri Slökkviliðsins á Akureyri við stigabíla slökkviliðisins, þann gamla og nýja sem er fjölmörgum kostum búin. Myndir/MÞÞ

Slökkviliðið á Akureyri hefur fengið nýjan björgunarstigabíl sem leysir af hólmi eldri og svifaseinni körfubíl. „Þetta verður gríðarlega breyting fyrir okkur hvað öll björgunarstörf varðar, en nýi bílinn er búin nútímaþægindum þegar að björgunarstörfum kemur sem flýtir öllum ferlum og auðveldar störf hvort heldur sem verið er að bjarga mannslífum eða verðmætum,“ segir Maron Pétursson deildarstjóri hjá Slökkviliðinu á Akureyri.

Stigabílinn er af gerðinni Scania og stiginn og yfirbygging var smíðað í Frakklandi, en fulltrúar þaðan eru væntanlegir til Akureyrar fljótlega og munu í kenna þremur liðsmönnum Slökkviliðsins á bílinn. Þeir munu í kjölfarið taka að sér að miðla þekkingunni til allra starfsmanna Slövkkiliðsins. Maron á von á að ekki líði að löngu þar til allir hafi lært á þá fjölmörgu möguleika sem bílinn bíður upp á.

Langþráður draumur hefur ræst

Gamli bílinn er frá árinu 1989 og í sjálfu sér ekki mörgum kostum búinn og segir Maron að hann hafi ekki hentað vel alls staðar, enda víða þröngar götur á Akureyri sem erfitt er að komast um með slíkan bíl. Þegar svo væri komið í sambandi við bílinn, að honum væri ekki lengur treystandi væri ekki annar kostur í stöðinni en slíta sambandinu. „Það eru um það bil 7 ár frá því við fórum að ræða að þörf væri fyrir nýjan bíl, en til tíðinda dró í október árið 2020 þegar skrifað var undir samning um kaupin á Scania bílnum. Það hafa svo eins og gengur á tímum heimsfaraldurs orðið tafir á afhendingu, en loks er bílinn kominn norður og má segja að langþráður draumur okkar hafi ræst.“

Veitir mikið öryggi

Skyndihjálp

 Slökkviliðið á Akureyri efndi til sýninga á Glerártorgi í tilefni af 112 deginum í liðinni viku og tókst vel til, aðsókn var góð einkum á sýningar sem voru seinnipartinn og var fólk mjög áhugasamt um starfsemi liðsins. Markmiðið með deginum var að fræða almenning um störf slökkviliðsins, en kynntar voru aðferðir við reykköfun, björgun og endurlífgun.

 Stigabílinn kemst 32 metra upp í loft í beinni stöðu og við bætast tveir metrar, frá jörðu og upp í stiga. Hitamyndavél er í bílnum sem gerir að verkum að menn eru fljótari að greina hvar mestur hiti er í brennandi byggingum, það flýti mjög fyrir öllum björgunarstarfi að sögn Marons. Þá nýtist bíllinn við fleira en útköll vegna elds. Hann segir að ekki síður sé horft til þess björgunarstarfa í tengslum við umferðaslys, m.a. þegar bílar lenda utan vega. Þá er hægt að nýta bílinn til að sækja slasað fólk og ferja það í körfunni að sjúkrabíl í stað þess að ganga með það langar leiðir.

„Þessi bíll veitir okkur öllum íbúum bæjarins mikið öryggi og við fögnum því innilega að hafa fengið hann til afnota,“ segir Maron.

/MÞÞ

Stigabíll

Karfan fer lengst 32 metra upp í loft og til viðbótar koma tveir metra frá jörðu og upp í stiga.

Athugasemdir

Nýjast