Færist fjör í leikinn

Fjölbreytni verslana á Glerártorgi eykst
Fjölbreytni verslana á Glerártorgi eykst

Samkvæmt  upplýsingum sem telja verður mjög áreiðanlegar opnar verslunin  Blush á Glerártorgi fljótlega á nýju ári. 

Verslunin hefur notið mikilla vinsælda en hún er sérverslun með ýmiskonar tæki og tól sem sem krydda eiga ástarlif  fólks eða eins  og segir í slagorði verslunarinnar  ,,hjá okkur færðu vandaðar unaðsvörur“.    Verslunin verður  til húsa norðan á Glerártorgi, ekki langt frá Vogue

Fram til þessa hefur Blush einungis verið með eina verslun starfrækta og er sú í Kópavogi en nú er s.s breytinga að vænta í þeim efnum.  Verslunum heldur því áfram að fjölga á ,,Torginu", kaupglöðum  til yndisauka og mun eitt  og annað vera fyrir dyrum í þeim efnum.


Athugasemdir

Nýjast