Evrópudagur sjúkraliða

Anna Fanney Stefánsdóttir      Mynd sak.is
Anna Fanney Stefánsdóttir Mynd sak.is

Sunnudaginn 26. nóvember var haldið upp á evrópudag sjúkraliða. Við Sjúkrahúsið á Akureyri starfa um 100 sjúkraliðar í hinum ýmsu störfum. Anna Fanney er ein þeirra.

Nafn: Anna Fanney Stefánsdóttir

Fæðingarár: 1990

Hvaðan ertu: Akureyri

Menntun: Sjúkraliði og heilsunuddari

Áhugamál: Mér finnst ótrúlega gaman að ferðast, lesa glæpasögur og tók upp á því í fyrra að finnast gaman á gönguskíðum! (Þrátt fyrir að hafa sinnt mörgum brotnum sjúklingum eftir gönguskíða óhöpp😉).

Hvað varstu í fyrra lífi: Forystukind

Hvernig lítur dagur út í lífi sjúkraliða á SAk: Mæta í vinnuna, fá sér kaffi og athuga hvað er í matinn. Að öllu gamni slepptu lítur hann mjög vel út. Annasamur, fjölbreyttur, fræðandi og krefjandi. Fullur af hugulsemi og kærleik, þakklæti, hlátri og gleði.

Hvað er skemmtilegast í vinnunni: Sjá framfarir sjúklinga sinna, allt nammið og auðvitað hvergi betra og skemmtilegra samstarfsfólk❤️.

Hvað er mest krefjandi í vinnunni: Að geta ekki bjargað öllum.

Heimasíða SAk. sagði frá 


Athugasemdir

Nýjast