Ekki standa á öðrum fæti allt lífið

Kristín Erna ásamt Erni föður sínum. Mynd/aðsend
Kristín Erna ásamt Erni föður sínum. Mynd/aðsend

Út er komin bókin Arnar Saga Björnssonar: Ekki standa á öðrum fæti allt lífið, en það er HB útgáfa sem gefur bókina út.

Í bókinni segir frá ævintýralegum lífsferli Arnar sem var árum saman útibústjóri Íslandsbanka á Húsavík. Einkunnarorð Arnar eru „Ef þú íhugar hvert skref til fullnustu stendur þú á öðrum fæti allt lífið.“ Þessum orðum hefur Örn ávallt fylgt.

Það skiptast á skin og skúrir í lífi Arnar sem og í íslensku samfélagi. Í gegnum ferðalag hans frá fjögurra ára aldri til dagsins í dag kynnumst við þróun samfélagsins, atvinnulífs og menningu á tímum umbreytinga, og mikilla framfara. Við fáum einnig innlit í endalok uppgangstímans í bankakerfinu fyrir hrun, en 23 ára starfsferli Arnar sem útibústjóralauk nokkrum dögum áður en íslenska fjármálakerfið hrundi árið 2008.

Það er Kristín Erna Arnardóttir, elsta dóttir Arnar sem skrásetti lífshlaup föður síns. Saga Arnar er fyrsta bókin sem hún skrifar en hún hefur megnið af starfsævinni unnið sem upptökustjóri sjónvarpi og sem framleiðandi og framkvæmdastjóri við kvikmyndagerð.


Athugasemdir

Nýjast