Ein með öllu um verslunarmannahelgina

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu verður haldin á Akureyri um Verslunarmannahelgina dagana 4.ágúst til 6.ágúst. Bærinn iðar af lífi og fjöri yfir hátíðina þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar verða fjölskyldu-, barna-, og kvöldskemmtanir um allan bæ, landsþekktir listamenn stíga á stokk, tvö tívolí mæta í bæinn og verða staðsett á samkomuhúsflötinni, skógardagur í Kjarnaskógi, sparitónleikarnir og aðrir viðburðir munu sjá til þess að halda lífi og fjöri í bænum.

„Við erum stolt af því að hafa fengið með okkur í lið hina mögnuðu Kötu Vignis sem kynni hátíðarinnar en Kata fór með hlutverk Jennýar í söngleiknum Chicago í uppsetningu Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hún var tilnefnd til Grímuverðlauna sem dansari ársins, en sýningin sló rækilega í gegn og fékk 7 tilnefningar og vann tvær þeirra. Kata mun sjá til þess að gera hátíðina ógleymanlega með okkur. Sparitónleikarnir í ár verða þeir stærstu hingað til en við höfum fengið með okkur landsþekkt tónlistarfólk á borð við Herra Hnetusmjör, Diljá, Friðrik Dór, Pál Óskar, Birki Blæ, Jónas Sig og hljómsveit og marga fleiri. Við lofum alvöru stemningu á flötinni svo láttu þig ekki vanta á sunnudagskvöldið 6.ágúst. ,“ segir í tilkynningu um hátíðina.

„Tónlistarlífið“

Mikið er um tónlist yfir hátíðina en á Græna Hattinum er dagskráin ekki að verri endanum þar sem Magni, Matti Papi og Jónas Sig og hljómsveit stíga á svið og halda næturlífinu gangandi alla helgina. Í Akureyrarkirkju verður boðið upp á Óskalagatónleika með þeim Óskari Péturssyni, Eyþóri Inga Jónssyni og Ívari Helgasyni þar sem þeir syngja og spila óskalög tónleikagesta. Tónleikarnir hafa fengið frábærar undirtektir frá bæjarbúum þar sem gestir fá lagalista með nokkuð hundruð lögum og biðja svo um óskalög.
Í Sjallanum verður nóg um að vera en á föstudagskvöldið verður blásið upp Dynheimaballi, Páll Óskar og Emmsjé Gauti stíga á svið á laugardagskvöldinu og svo klára Herra Hnetusmjör, Aron Can og Friðrik Dór hátíðina á sunnudagskvöldið.

  Föstudag og laugardag verður viðburðurinn “Akureyri er okkar” verður haldin á ný en þá taka veitingamenn bæjarins sig saman og halda pop up tónleika á hverju veitingahúsi fyrir sig, fólk röltir á milli veitingahúsa og horfir á frábæra listamenn flytja sína tónlist. Bærinn mun allur iða af tónlist.

„Nóg af hreyfingu og fjöri“

Akureyri.bike verður með skemmtilega hjólaáskorun á laugardeginum þar sem samanlagður tími upp 5 brekkur í Eyjafirði verður tekinn saman og einnig verða rafhjólaleikar með skemmtun fyrir rafdrifna fjallahjólarar sem takast á við 4 af skemmtilegustu brekkum bæjarins á sunnudeginum.
Það verður nóg í boði fyrir hlaupagarpa bæjarins en hlaupamótið Súlur Vertical verður með fjórar vegalengdir í boði, 18km, 28km, 55km og 100km utanvegahlaup. Hlaupið er alveg upp á Súlur og endað í miðbæ Akureyrar. Krakkahlaup Súlur Vertical er svo haldið í Kjarnaskógi á föstudeginum.
Húlludúlluna má ekki vanta um Verslunarmannahelgina en hún verður á tveimur stöðum um helgina, á útisvæði Sykurverks í miðbænum og í Kjarnaskógi á skógardeginum. Allir krakkar velkomnir að húlla saman!

„Menning, list og hönnun“

Það verður einnig nóg í boði fyrir listunnendur og aðra áhugamenn um hönnun en á Ráðhústorginu verður markaðsstemning á föstudag, laugardag og sunnudag þar sem handverk, listmunir, nýjar og gamlar vörur, skór, fatnaður og margt annað verður til sölu. Einnig verða götubitar landsins mættir að leyfa fólki að njóta sinna bita.
Í Lystigarðinum verða Mömmur og möffins með notalega stemningu þar sem möffins verður til sölu og öll innkoma viðburðarins rennur líkt og áður til Fæðingardeildar Sjúkrahúss  Akureyrar. Mömmur og möffins hefur fengið frábærar móttökur síðustu ár þar sem áhugabakarar geta tekið þátt í söfnuninni og skemmtuninni.
Söfnin í bænum verða að sjálfsögðu opin um helgina svo nóg verður um menningu og list. Mótorhjólasafnið, Listasafnið á Akureyri, Flugsafnið, Leikfangasýning í Friðbjarnarhúsi, Safnasafnið og Iðnaðarsafnið taka vel á móti gestum og gangandi.
. Húlladúllan stígur á svið á tveimur stöðum um helgina, í miðbænum á laugardaginn og í Kjarnaskógi á sunnudaginn.

„Endalaus skemmtun“

Alvöru hátíð má að sjálfsögðu ekki vanta tívolí en Sprell Tívolí og Taylor’s Tivoli hafa boðað komu sína til bæjarins yfir helgina þar sem m.a. fallturn, hringekja, hoppukastalaland og margt fleira verður í boði á samkomuhúsflötinni frá fimmtudegi til sunnudags.
Á Glerártorgi verður nóg um að vera en Leikhópurinn Lotta mun koma fram og sýna brot af þvi besta, gefins Candy floss og hæfileikakeppni unga fólksins á Glerártorgi verður a sínum stað klukkan 15:00 á laugardeginum og geta allir krakkar á  aldrinum 8-16 ára skráð sig.
Skógardagurinn verður haldinn á sunnudaginn en í Kjarnaskógi verður ýmislegt í boði fyrir gesti og gangandi og þessi viðburður fer stækkandi með hverju árinu, enda fátt betra en að spóka sig um í einum fallegasta skógi landsins.
Á sunnudagskvöldið er svo komið að sparitónleikunum sem haldnir verða á flötinni fyrir neðan samkomuhúsið þar sem samansafn af glæsilegu tónlistarfólki skemmtir bæjarbúum og öðrum gestum. Herra Hnetusmjör, Diljá, Friðrik Dór, Aron Can, Birkir Blær, Ragga Rix, Jónas Sig og hljómsveit og Rúnar Eff munu sjá til þess að skemmta okkur fram á miðnætti. Tilvalið að taka með sér fjölskyldu og vini og syngja hástöfum, fylgjast með flugeldasýningunni og smábátum bæjarins sigla á pollinum.

Eftir tónleikana opna svo skemmtistaðir bæjarins og halda stuðina áfram langt fram á nótt.



Athugasemdir

Nýjast