Eigendur Syðri-Bægisár fá umhverfisverðlaun

Hörgársveit.
Hörgársveit.

Á fundi Skipulags og umhverfisnefndar Hörgársveitar fyrr á árinu var ákveðið að veita eigendum Syðri-Bægisár, þeim Helga Steinssyni og Rögnu Margréti Þorsteinsdóttur, umhverfisverðlaun Hörgársveitar árið 2020.  

Sveitarstjórn Hörgársveitar færði þeim verðlaunin á 10 ára afmælisdegi Hörgarsveitar í sumar. „Við óskum þeim Helga Bjarna og Rögnu Möggu innilega til hamingju með verðskulduð verðlaun,“ segir á vef sveitarfélagsins.


Athugasemdir

Nýjast