Edda komin á sinn stað við Sólgarð

Listaverkið Edda, eftir Beate Stormo, er nú komið á sinn stað. Mynd: Esveit.is
Listaverkið Edda, eftir Beate Stormo, er nú komið á sinn stað. Mynd: Esveit.is

Listaverkið Edda, eftir Beate Stormo, er nú komið á sinn stað og sómir sér vel rétt norðan við Smámunasafn Sverris Hermannssonar. Verkið hefur verið í vinnslu um nokkuð langt skeið og hafa margir lagt sitt af mörkum til að það geti orðið að veruleika. Má þar helst nefna Ferðamálafélag Eyjafjarðarsveitar sem átti frumkvæðið á verkefninu, sá um val á listamanni og stóð að fjáröflun verkefnisins. Greint er frá þessu á vef Eyjafjarðarsveitar.

Í tilkynningunni eru íbúar Eyjafjarðarsveitar og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta á staðinn og skoða verkið. Kjörið sé að líta við í hið skemmtilega Smámunasafn Sverris Hermannssonar í leiðinni en bílastæði fyrir Eddu eru einmitt á planinu við safnið. 

Göngustígur og falleg brú úr íslenskum við hefur verið komið fyrir á svæðinu ásamt því að nánasta umhverfi hefur verið snyrt. Örlítil frágangsvinna er eftir á svæðinu svo sem lýsing fyrir listaverkið og er stefnt að formlegri vígslu á Eddu í ágúst. 


Athugasemdir

Nýjast