Dekurdagar haldnir í 15 sinn

Vilborg með slaufur sem prýða munu bæinn.  Mynd  Dekurdagar
Vilborg með slaufur sem prýða munu bæinn. Mynd Dekurdagar

Dekurdagar verða haldnir á Akureyri um komandi helgi og undirbúningur stendur nú sem hæst. Eitt af því er sala á slaufum sem hengdar eru á ljósastaura um bæinn og lífga mjög upp á lífið þessa haustdaga.

 Slaufusala stendur sem hæst um og gengur vel. Í fyrra söfnuðust um 5 milljónir króna og verður erfitt að toppa það segir Inga Vestmann sem stendur að slaufusölunni ásamt Vilborgu Jóhannsdóttur. 

Slaufusalan virkar þannig að fólk millifærir inn á reikning Dekurdaga (auglýsing í síðustu Dagskrá) kr. 5000.-  Sendir svo póst á inga@pedro.is og segir hvar á að hengja slaufuna upp.  Andvirði slaufusölu rennur til Krabbameinsfélagsins. 

 

 


Athugasemdir

Nýjast