Barðist við húsflugur á adamsklæðunum

Plötuumslag lagsins en á því hefur listakonan Anna Richardsdóttir tekið að sér hlutverk flugunnar.
Plötuumslag lagsins en á því hefur listakonan Anna Richardsdóttir tekið að sér hlutverk flugunnar.

Út er komið nýtt lag með hljómsveitinni Tonnatak, Drepa flugur. Líkt og oft áður er leitað í reynsluheim hljómsveitarmeðlima, í þetta sinn bassaleikara sveitarinnar.

Í texta lagsins er fjallað um það þegar hann barðist hetjulega við húsflugur tvær sem röskuðu nætursvefni hans. Vopnaður upprúlluðu eintaki af Bo & Bedre barðist hann á adamsklæðunum einum saman en gáði ekki að sér og vakti með þessum athöfnum snót sem fékk að gista þessa nótt. Ekki fylgir sögunni hvað stúlkunni fannst um aðfarirnar en hún gisti áfram við hlið hans næstu 34 árin.

Tonnatak

Meðlimir Tonnataks eru Kristján Pétur Sigurðsson, Þorsteinn Gíslason, Haukur Pálmason og Daníel Starrason og verður útgáfunni fagnað á Populuskvöldi í Deiglunni laugardagskvöldið 29. apríl.

 


Athugasemdir

Nýjast