Allir geta græjað hakk og spaghetti

Theódór Sölvi Haraldsson matreiðslumeistari
Theódór Sölvi Haraldsson matreiðslumeistari

Miðvikudagur og þá vefst það mjög oft virkilega fyrir fólki hvað skal  hafa í kvöldmatinn, Theódór Sölvi er hér með afbragðs lausn.

Theódór Sölvi Haraldsson er matreiðslumeistari með kennsluréttindi í faginu. Eiginkonan, María Sigurlaug Jónsdóttir er einnig matreiðslumeistari, „þannig að það er mikið rætt um matreiðslu á okkar heimili,“ segir hann. Þau eiga fjögur börn. Theodór kveðst hafa fengið það tækifæri að kenna á matvælabraut VMA en hann er nýbyrjaður að vinna við mötuneyti ÚA.

„Þegar ég hugsaði um hvaða uppskrift yrði fyrir valinu þá hugsaði ég um þægindi, eitthvað sem er gott og stendur fyrir sínu. Þetta réttur sem ég get gengið að vísu að yrði borðaður á mínu heimili. Það hafa flestir borðað þetta í æsku og allir ættu að geta græjað þetta í eldhúsinu heima.,“ segir hann.

Hakk og spaghetti

Uppskrift fyrir 4

800 gr Nautahakk

100 gr Laukur

100 gr Gulrætur skornar í litla teninga

1 stk Hvítlauksgeirar hakkaður

600 gr Hakkaðir tómatar í dós

100 ml Vatn

2 msk Tómatpurré

100 gr Tómatsósa

2 msk Chilli mauk (sambal olek)

1-2 msk Kjötkraftur

300 gr Spaghetti

Ólífuolía eftir smekk (Fyrir suðuvatnið)

Salt eftir smekk (Fyrir suðuvatnið)

 

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja vatn í pott ásamt salti og ólífuolíu fyrir suðuna á spaghetti.
  2. Næst er hakkið steikt á pönnu þanngað til það er eldað í gegn og búið að losna vel í sundur.
  3. Því næst er laukur og gulrætur bætt út á pönnuna og steikt með hakkinu í smá stund.
  4. Hvítlauksgeiranum, hökkuðu tómötunum í dós, vatni, tómatpurré, tómatsósu, chilli mauki og kjötrafti er bætt út á og þetta er síðan soðið í 15 mín.
  5. Næst á dagskrá er að smakka sósuna til.
  6. Sjóðið pastað í 5-7 mín eða lengur ef þarf (fer eftir pastategund)
  7. Þá er þetta tilbúið. Gott að bera þetta fram með rifnum parmesan og hvítlauksbrauði.

Athugasemdir

Nýjast