Aðventugöngu Einars Skúlasonar lýkur í dag

Einar Skúlason göngugarpur                            Mynd Facebooksíða Einars
Einar Skúlason göngugarpur Mynd Facebooksíða Einars

Einar Skúlason göngugarpur sem er að ganga gömlu póstleiðina frá Seyðisfirði til Akureyrar er væntanlegur á bæjarins í dag fimmtudag.   Reiknað er með að hann verði við Leirunesti um kl.18:00.  Þar verður hægt að taka á móti Einari og ganga með honum að Ráðhústorgi þar sem göngunni lýkur. 

Óhætt er að segja að vel hafi tekist og Einar klárar  í dag þessa 270 km sem leiðin er.

Eins og fram hefur komið er gangan  til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis og hefur söfnun henni samhliða gengið mjög vel.

Fyrir fólk sem vill leggja söfnun þessari lið koma hér upplýsingar:

Greiðslur fara þannig fram að millifært er á eftirfarandi reikning í eigu Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis: rn:0302-13-301557  kt:520281-0109

 


Athugasemdir

Nýjast