Á Akureyrarvöku um næstu helgi verður afmæli Akureyrarbæjar fagnað með litríkri menningardagskrá frá föstudegi fram á laugardagskvöld. Liðlega hundrað viðburðir af öllum stærðum og gerðum eru í boði.
Á föstudag verða meðal annars opnaðar nýjar sýningar í Iðnaðarsafninu og Mjólkurbúðinni og meðal hápunkta um kvöldið er rómantísk stemning á Rökkurró í Lystigarðinum og Froðudans í Sundlaug Akureyrar með rapparanum Saint Pete og raftónlistarmanninum Pitenz.
Laugardagurinn verður pakkaður af viðburðum frá morgni til kvölds. Víkingatjaldbúðir með víkingamarkaði, hólmgöngu, vopnaskaki og leikjum verða frá kl. 11-18.30 á laugardag á MA-flötinni svokölluðu og tjaldbúðirnar verða einnig opnar almenningi frá kl. 11-14.30 á sunnudag. Húni II fer í ókeypis fjölskyldusiglingu að morgni laugardagsins, boðið verður upp á götumarkað á Ráðhústorgi eftir hádegið, Jón Jónsson verður með söngskemmtun í Hofi, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands leikur tónlist úr Pétri og úlfinum á sama stað, Skógarlundur fagnar afmæli með opnu húsi og þrjár nýjar sýningar verða opnaðar í Listasafninu.
Of langt mál yrði að telja upp alla liðlega 100 viðburði helgarinnar en fjörið eykst þegar líður að laugardagskvöldi. Þá verður ball í Göngugötunni með Ágústi Brynjars og hljómsveit en áður kemur Kalli Örvars öllum í gírinn með gamansögum og söng. Loks verður hin eina sanna Bríet með útiball fyrir utan Múlaberg í miðbænum.
Kynnið ykkur hvern og einn viðburð á Akureyrarvaka.is.
Fylgstu með Akureyrarvöku á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og Instagram.
Þetta segir í tilkynningu