Þingeyjarsveit - Hækkun kílómetragjalds mótmælt

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar mótmælir harðlega fyrirhugaðri hækkun á kílómetragjaldi…
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar mótmælir harðlega fyrirhugaðri hækkun á kílómetragjaldi á ökutæki. Mynd thingeyjarsveit.is

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar hefur mótmælt fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds á ökutæki sem lögð er til í tengslum við fjárlög ársins 2027.

Nefndin bendir á að hækkunin muni auka framleiðslu- og flutningskostnað atvinnugreina í Þingeyjarsveit og að gjaldið taki ekki tillit til ólíkra aðstæðna sveitarfélaga. Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag landsins, byggðin dreifð og vegalengdir oft langar. Hækkunin geti því komið sérstaklega þungt niður á atvinnurekendum og íbúum sveitarfélagsins.

Ályktun nefndarinnar var samþykkt samhljóða.

Frá þessu segir á vef Þingeyjarsveitar

Nýjast