Sköpunargleði á efri árum

Hinn árlegi handverksmarkaður íbúa Hvamms, Miðhvamms og Litlahvamms á Húsavík opnar þriðjudaginn 24. nóvember. Þar gefst gestum kostur á að festa kaup á fjölbreyttu handverki sem íbúarnir hafa unnið að.

Þau Heiðrún Hallgrímsdóttir, Ingólfur Jónsson, Sigrún Guðnadóttir, Stefán Kjartansson og Valdimar Ingólfsson verða með vörur til sölu á markaðnum í ár.

Meðal þess sem verður á boðstólum eru handprjónaðar peysur, húfur, vettlingar og sokkar auk fjölbreyttra muna úr tré, svo sem eldhúsáhalda, skála, bretta og útskorinna klukkna.

Markaðurinn er orðin fastur liður í aðdraganda jólanna á Hvammi og gefur íbúum tækifæri til að koma handverki sínu á framfæri um leið og þeir njóta ánægjunnar sem fylgir því að skapa og hafa eitthvað fyrir stafni.

Opið verður í kjallara Hvamms alla virka daga frá klukkan 13 til 16 fram í desember. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Nýjast