Frá vinstri á myndinni eru Bjarni Þórhallsson, formaður Golfklúbbs Akureyrar, Sigrún Steinarsdóttir frá Matargjöfum og Íris Ósk Gísladóttir sölu- og markaðsstjóri Skógarbaðanna
Skógarböðin og Golfklúbbur Akureyrar afhentu í dag Matargjöfum Akureyrar og nágrennis styrk að upphæð 500.000 krónur, sem safnaðist í góðgerðarhöggi við Skógarböðin.
Markmið góðgerðarhöggsins er að styðja við mikilvægt samfélagsverkefni og varð Matargjafir Akureyrar og nágrennis fyrir valinu í ár vegna þess ómetanlega starfs sem samtökin vinna fyrir einstaklinga og fjölskyldur á Norðurlandi.
Viðburðurinn sýndi hversu miklu er hægt að áorka þegar fyrirtæki, félög og einstaklingar leggja krafta sína saman. Samstaðan og viljinn til að leggja góðu málefni lið gerði það að verkum að safnaðist þessi glæsilega upphæð sem nú rennur óskipt til starfsemi Matargjafa.
Samfélagsábyrgð er Skógarböðunum mikilvæg og fyrirtækið leggur áherslu á að styðja við verkefni sem hafa raunveruleg og jákvæð áhrif á nærumhverfið. Með samstarfi við Golfklúbb Akureyrar tókst að skapa vettvang þar sem íþróttir, samvera og samfélagsleg ábyrgð fóru hönd í hönd.
Það er auðvelt að gleyma því að öflugt samfélag byggist af stórum hluta á fólki sem er tilbúið að rétta öðrum hjálparhönd. Starf Matargjafa Akureyrar og nágrennis er einmitt lifandi dæmi um það. Á hverjum degi leggja sjálfboðaliðar og aðrir sem koma að verkefninu sitt af mörkum en það gera þau af alúð, metnaði og umhyggju til að styðja við þá sem þurfa á hjálp að halda.
Skógarböðin vilja færa Golfklúbbi Akureyrar innilegar þakkir fyrir farsælt samstarf við framkvæmd verkefnisins, sem og öllum þátttakendum sem lögðu sitt af mörkum til að gera þessa styrkveitingu mögulega.
Jafnframt vilja Skógarböðin þakka Matargjöfum Akureyrar og nágrennis fyrir það óeigingjarna og mikilvæga starf sem samtökin vinna á hverjum degi. Það er einlæg von okkar að styrkurinn nýtist vel og styðji áfram við það mikilvæga hlutverk sem þau gegna í samfélaginu.
Þegar við stöndum saman getum við raunverulega skipt máli og gert samfélagið okkar hlýrra og sterkara.
Frá þessu segir í tilkynningu á Fb vegg Skógarbaða
Eyjafjarðarsveit hefur haft frumkvæði að því að kanna grundvöll fyrir stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga, að fyrirmynd sambærilegra hagsmunasamtaka.
Markmiðið er að skapa sameiginlegan vettvang sveitarfélaga þar sem landbúnaður er mikilvægur þáttur í atvinnulífi og samfélagi, til hagsmunagæslu í málefnum eins og skipulagsmálum, tekjustofnum og samskiptum við ríkisvaldið.
Þreifingar hafa farið fram meðal sveitarfélaga og eru viðbrögð jákvæð. Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt samhljóða þátttöku sveitarfélagsins í samtökunum.
„Nú þarf að hafa hraðar hendur, finna staðsetningu og hefjast handa við hönnun,“ segir Katrín Árnadóttir sem vakti athygli á málefnum Brekkukots í viðtalstíma bæjarfulltrúa nýverið. Katrín er móðir Ídu Anton, 10 ára stelpu með Downs heilkenni sem nýtir sér þjónustu Brekkukots.
Norðurþing vinnur að nýrri umferðaröryggisáætlun sem á að nýtast við að forgangsraða úrbótum í sveitarfélaginu. Íbúasamráð stendur nú yfir og geta íbúar komið á framfæri ábendingum og athugasemdum um umferðaröryggi til 22. október
Á sunnudaginn komandi 11. október kl 13-13.30 er boðið í samtal með Brák Jónsdóttur myndlistarmanni í Flóru menningarhúsi í Sigurhæðum. Rætt verður um verk Brákar sem hún vann í ár sérstaklega fyrir Sigurhæðir, tilurð verkanna, hugmyndir, áferði og áhrif.
Stórt gróðurhús er nú risið í starfsstöð Lands og skógar í Vaglaskógi. Húsið er viðbót við eldra hús nýtt hefur verið undanfarna áratugi í kynbótastarf á vegum stofnunarinnar og fyrirrennara hennar.
„Nú er allt að verða klárt og mikil tilhlökkun í loftinu,“ segir Jóhanna S. Ingólfsdóttir leikstjóri og formaður Freyvangsleikhússins. Þar á bæ verður glænýtt íslenskt leikrit, Útsynningur frumsýnt í kvöld, föstudagskvöldið 9. október kl. 20. Verkið er eftir Hjálmar Arinbjarnarson, sem er sannkallaður innanbúðarmaður í Freyvangsleikhúsinu en hann hefur tekið þátt í starfi þess í yfir 20 ár. Verkið verður einungis sýnt í október, miðasala fer mjög vel af stað og hvetur Jóhann áhugasama því að hafa hraðar hendur og tryggja sér miða í tíma.
Nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla staðfesti nokkuð mun stærra en hver afstaða þjóðarinnar sé til ESB. Hún afhjúpaði efnahagslega og samfélagslega gjá sem hefur smám saman myndast milli höfuðborgarinnar og annarra landshluta. Niðurstaða kosninganna eftir kjördæmum leiddi þetta bersýnilega í ljós.
Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að n.k laugardag 10 október verður um land allt efnt til við viðburðar sem nefnist Samtalið en til þess var stofnað að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Hún vill setja samtal og frið á dagskrá á ný.
Dekurdagar á Akureyri eru hafnir og standa yfir til sunnudags, þetta er árlegur viðburður þar sem fólk er hvatt til þess að njóta lífsins, enda fjölmargt í boði .