Nýtt- Flug á Húsavík heldur áfram

Flugt tryggt til Húsavíkur næstu mánuði
Flugt tryggt til Húsavíkur næstu mánuði

Samningar hafa náðst milli Flugfélagsins Ernis og Vegagerðarinnar, um áframhaldandi flug til Húsavíkur næstu 3-4 mánuðina.

 Búið er að opna fyrir sölu á flugi til loka febrúar, hið minnsta. Flogið verður fimm sinnum í viku. Ljóst er að full þörf er á þessum samgöngumáta inn á svæðið hvort sem er fyrir almenning, fyrirtæki, stofnanir eða ferðaþjónustu. 

 Flugfélagið Ernir vill koma því á framfæri að fólk getur séð flugáætlunina og jafnframt bókað sig í flug á ernir.is

 Á næstu vikum og mánuðum mun svo koma í ljós hvort að þjónustustigið verði tryggt til lengri tíma.

Frá þessu segir í tilkynningu frá flugfélaginu rétt í þessu 


Athugasemdir

Nýjast