Ný starfsstöð Persónuverndar á Húsavík

Húsavík.
Húsavík.

Persónuvernd vinnur nú að undirbúningi nýrrar starfsstöðvar á Húsavík. Auglýst hefur verið eftir tveimur starfsmönnum Persónuverndar, annars vegar lögfræðingi sem sinna mun hefðbundnum lögfræðistörfum fyrir Persónuvernd og hins vegar sérfræðingi í þjónustuveri, en umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2021. 

Málaflokkur persónuverndarmála hefur sífellt ríkara hlutverki að gegna í samfélagi nútímans og fer hratt vaxandi á alþjóðavísu. Stafræn þjónusta, vöxtur gagnafyrirtækja ásamt aukinni notkun samfélagsmiðla og nettengdra snjalltækja gera sérstakar kröfur þegar meðferð persónuupplýsinga er annars vegar. Að sögn Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, og Svavars Pálssonar, sýslumanns, er hér á ferðinni dæmi um starfsemi sem ekki er háð staðsetningu og því vel til þess fallin að eiga samstarf um, enda sé gætt að kröfum íslenskra laga og Evrópureglna um persónuvernd, eftirlit og vinnslu persónuupplýsinga sem sæta ströngu eftirliti stofnana Evrópusambandsins.

Alþingi veitti Persónuvernd fé á fjárlögum ársins 2021 á grundvelli sameiginlegra tillagna Persónuverndar og Sýslumannsins á Norðurlandi eystra. Hér er því um að ræða fyrirkomulag sérhæfðrar miðlægrar stofnunar á sérsviði persónuverndarmála í samstarfi við staðbundna ríkisstofnun í héraði.  Áformað er að starfsemi nýju starfsstöðvarinnar hefjist á Húsavík í marsmánuði næstkomandi.

 


Athugasemdir

Nýjast