Mikill áhugi á nýjum atvinnulóðum við Sjafnargötu

Mikill áhugi reyndist vera á sex athafnalóðum við Sjafnargötu 5-15 á Grænhólssvæðinu
Mikill áhugi reyndist vera á sex athafnalóðum við Sjafnargötu 5-15 á Grænhólssvæðinu

Mikill áhugi reyndist vera á sex athafnalóðum við Sjafnargötu 5-15 á Grænhólssvæðinu á Akureyri sem nýverið voru auglýstar til úthlutunar. „Það var töluverður áhugi fyrir þessum lóðum og við erum í raun búin að úthluta þeim öllum,“ segir Pétur Ingi Haraldsson sviðsstjóri skipulagssviðs.

Eitt félag, Katla Byggir ehf sótti um þrjár lóðir við götuna en Pétur Ingi sagði spurningu hvort einhverri yrði skilað. „Það kemur í ljós á næstu vikum.“

Kraftur og afl ehf. sótti um lóð númer 5, Hekla fasteignir sótti um lóðir númer 7 og 9, Katla Byggir sótti um lóðir númer 11, 13 og 15. Skipulagsráð hefur samþykkt allar umsóknir.

Lóðirnar eru hluti af uppbyggingu á nýju athafnasvæði við Grænhól og eru á bilinu 4.745 til 5.515 fermetrar að stærð með nýtingarhlutfall 0,4. Markmiðið er að skapa svigrúm fyrir nýja atvinnustarfsemi og frekari uppbyggingu norðan við núverandi atvinnusvæði bæjarins

Nýjast