Að skuldbinda sig til einhvers er að skylda sig til einhvers eða heita einhverju með hátíðlegi loforði samkvæmt íslenskri orðabók. Þetta orð hefur leitað á huga minn í talsverðan tíma. Ég er nú einu sinni þannig gerð að heilinn í mér á það til að festast í einhverjum hugrenningum og þetta orð er eitt af þeim.
Mér finnst skuldbinding fólks fara þverrandi.
Þegar ég fór út á vinnumarkaðinn á seinni hluta fyrri aldar var mér uppálagt af foreldrum mínum að standa mig vel og virða skuldbindingar mínar, þ.e mæta á réttum tíma og gera það sem ætlast var af mér eins vel og ég gæti. Fyrir það fengi ég greitt og að fólk sem ekki gerði það myndi bara missa vinnuna og fá á sig slæmt orð. Foreldrar mínir tóku bæði þátt í störfum með sínum stéttarfélögum og lögðu sitt af mörkum til þess að gera starfsaðstæður félaga sinna betri. Það hef ég líka gert. Ég velti samt fyrir mér hvort það að veikindaréttur og lengri frí ss. Sumarfrí og betri vinnutími hafi átt þátt í að nú telji ,,allir” sig eiga rétt à hinu og þessu gagnvart vinnuveitanda og í lífinu almennt. ,,Við eigum öll að hafa það svo gott alltaf.”
Það er t.d. ekki óalgengt að ungt fólk sem ræður sig í sumarafleysingar ætlist til að þau geti farið í 3 vikna frí á miðju sumri. Það er líka orðið algengt að foreldrar taki börn á skólaskyldualdri úr skóla til að fara með þau til útlanda í tvær til þrjár vikur af því að það hentar þeim. Því miður er líka farið að heyrast um fólk sem telur það skyldu sína að taka út þessa tvo veikindadaga á mánuði í stað þess að safna þeim upp og nýta þegar virkilega er um veikindi að ræða eins og til var ætlast.
Ég held semsagt að það sé börnum jafn hollt að takast á við skyldur sínar eins og að læra um réttindi sín. Það að mæta í skóla undirbúin, á æfingar og gera annað það sem af þeim er ætlast styrkir börn en veikir þau ekki. Það er skylda foreldra /fullorðinna í þeirra lífi að vera þeim góð fyrirmynd hvað þetta varðar og leiðbeina þeim. Þannig byggjum við upp ábyrga einstaklinga.
En hvað er að marka mig? Kerlingu á sjötugsaldri, sem er svo skuldbundin honum Gunna að hún tekur að sér að bulla um hugrenningar sínar reglulega í þetta blað. Ég vona samt að blaðburðarbarnið sem tók að sér að skila blaðinu til mín, geri það.
