Núna, þegar er rétt rúmlega mánuður til jóla, hafa margir nú þegar skorið og steikt laufabrauðskökurnar. En aðrir hafa þann sið að gera ekki laufabrauðið fyrr en á aðventunni. Fyrir þremur árum eða svo var frá því greint hér á heimasíðunni að tveir félagar á öðru ári í vélstjórnarnámi í VMA, Gísli Már Þórðarson og Sólon Sverrisson, hefðu hafið framleiðslu á þrívíddarprentuðu laufabrauðshjóli og þeir önnuðu ekki eftirspurn. Þetta var sem sagt hugmynd sem þeir létu verða að veruleika og fljótlega kom í ljós að þeir höfðu rækilega hitt naglann á höfuðið.
Síðan þetta var hefur mikið vatn til sjávar runnið. Sólon lauk vélstjórnarnámi sínu frá VMA sl. vor. Þrívíddarframleiðslan hefur margfaldast og vöruframboðið einnig. Og um framleiðsluna hefur verið stofnað fyrirtækið Þrídí ehf. Sólon er í dag eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins en Gísli Már skellti sér í flugnám og hefur nú lokið því.
Sólon segir að enn séu laufabrauðshjólin og ýmsir stimplar fyrir laufabrauðsskurðinn drjúgur hluti af framleiðslu Þrídí. Hann segir að þessa dagana sé mikið að gera, laufabrauðsvertíðin sé í hámarki og því séu dagarnir langir, unnið alla daga frá sex á morgnana til ellefu á kvöldin. Raunar segir Sólon að laufabrauðsvertíðin sé ekki bara nokkrar vikur fyrir jól, hún dreifist á síðasta ársfjórðunginn. Laufabrauðshjólin og aðrar vörur selur Þrídí í gegnum vefsíðu fyrirtækisins og kúnnarnir segir Sólon að séu um allt land og raunar einnig í útlöndum, t.d. Danmörku og Bandaríkjunum. Vörur fyrirtækisins segir Sólon að séu einnig keyptar af hinum ýmsu félagasamtökum, t.d. íþróttafélögum og kvenfélögum, til fjáröflunar.
Á þessum tíma árs eru því framleiðsluvélarnar – 21 þrívíddarprentari – malandi allan sólarhringinn. Ekki veitir af til þess að anna eftirspurn.
En ekki aðeins framleiðir Þrídí vörur sem tengjast aðventu og jólum, sbr. laufabrauðshjólin og aðrar laufabrauðsvörur. Ein af þeim vörum sem Þrídí hefur hannað og framleitt er svokölluð ljósabrakket. Sólon segir að hann hanni og framleiði hinar ýmsu vörur samkvæmt óskum viðskiptavina.
Á heimasíðu fyrirtækisins má sjá eitt og annað sem það framleiðir. Sólon segir að möguleikar í vöruþróun og framleiðslu þrívíddarprentaðra vara séu óendanlegir og því sé hann bjartsýnn á framhaldið.
Til hliðar við námið í VMA stundaði Sólon fimleikana af kappi og var landsliðsmaður í bæði unglinga- og fullorðinsflokki. Til þess að halda sér í fremstu röð í fimleikunum segir Sólon að hann hefði þurft að verja mörgum klukkustundum á dag í æfingar en hann hafi séð að slíkt myndi ekki ganga til hliðar við fyrirtækjareksturinn. Því hafi hann ákveðið fyrir nokkrum mánuðum að setja punkt aftan við fimleikaferilinn og einbeita sér að Þrídí.
Frá þessu segir fyrst á vef VMA