Kvenfélagið Hjálpin færði viðbragðssveit SAk töskur fyrir hópslysabúnað

Frá vinstri: Freyja Sól Bessadóttir varaform., Ævar Helgi Ingvarsson, Eva Dögg Kristinsdóttir hjfr.,…
Frá vinstri: Freyja Sól Bessadóttir varaform., Ævar Helgi Ingvarsson, Eva Dögg Kristinsdóttir hjfr., Sára Belova aðstoðarm., Edda Ásgrímsdóttir hjfr. og Helga Berglind Hreinsdóttir form, Mynd sak.is

Kvenfélagið Hjálpin í Eyjafjarðarsveit færði nýverið viðbragðssveit Sjúkrahússins á Akureyri átta töskur að gjöf, fjórar stórar og fjórar minni.

Töskurnar eru ætlaðar undir hópslysabúnað sem sveitin tekur með sér á vettvang ef hópslys verður. Með gjöfinni getur viðbragðssveitin endurnýjað töskurnar sínar og skipulagt búnaðinn betur svo auðveldara sé að finna það sem þarf á vettvangi.

Sjúkrahúsið á Akureyri og viðbragðssveit SAk færa konunum í Kvenfélaginu Hjálpinni kærar þakkir fyrir höfðinglega gjöf.

Frá þessu er sagt á sak.is

Nýjast