Kristján Þór kynnti tillögu að landbúnaðarstefnu fyrir Ísland

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Mynd/Stjórnarráðið
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Mynd/Stjórnarráðið

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í ríkisstjórn í gær landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, Ræktum Ísland! Þetta er í fyrsta sinn sem mótuð er slík heildarstefna fyrir Ísland.

Ræktum Ísland! byggir á þremur lykilbreytum sem munu verða ráðandi í landbúnaði framtíðarinnar: 

  • landnýting, 
  • loftslagsmál og umhverfisvernd og
  • tækni og nýsköpun. 

 

Þessar þrjár breytur setja sterkan svip á þau tíu áhersluatriði sem dregin eru fram í stefnu tillögunni en þau eru:  landnýting, landsskipulag og flokkun, fæðuöryggi, líffræðilegur fjölbreytileiki, umhverfisvernd, alþjóðleg markaðsmál, neytendur, fjórða iðnbyltingin, menntun, rannsóknir, þróun, og fjárhagsleg samskipti ríkis og bænda. Þá er í tillögunum kynnt 22 skref sem að mati verkefnisstjórnar er nauðsynlegt að stíga við gerð aðgerðaráætlunar. 

„Landbúnaður er grunnstoð allra samfélaga. Framtíð og sjálfbærni íslensks landbúnaðar ræðst af því að litið sé til þeirra sóknarfæra sem felast í hreinni orku og auðlindum íslenskrar moldar og vatns. Skapa ber bændum svigrúm tilað nýta þessar auðlindir, m.a. með menntun, ráðgjöf, stuðningi, nýsköpun, vöruþróun og aðlögun að kröfum markaðarins,“ segir í stefnunni. 

„Eftir þessa umfangsmiklu vinnu og samráð við alla hlutaðeigandi liggur nú í fyrsta skipti fyrir opinber tillaga að íslenskri landbúnaðarstefnu. Ég er sannfærður um að sú tillaga geti orðið grundvöllur að víðtækri sátt um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Þetta sýna meðal annars þær umsagnir sem okkur bárust í samráðsferli og á hinum opnu fundum. Slík samstaða er í mínum huga afskaplega dýrmæt og markar út af fyrir sig tímamót í umræðu um íslenskan landbúnað. Að sama skapi er sú samstaða vitnisburður um að við séum á réttri leið í þessu verkefni sem að mínu mati er stærsta hagsmunamál íslensks landbúnaðar nú um stundir," segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Víðtækt samráð og jákvæð viðbrögð

Þrjú ár eru síðan vinna við mótun stefnunnar hófst í samráði við Bændasamtök Íslands, en hún var samvinnuverkefni stjórnvalda, bænda, neytenda og atvinnulífs undir forystu samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga. Í september 2020 skipaði ráðherra verkefnisstjórn um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland sem lagði í maí sl. fram Ræktum Ísland! umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Skjalið var í kjölfarið birt á samráðsgátt stjórnvalda. Ráðherra, ásamt verkefnisstjórn, fór að því loknu í hringferð um landið og hélt tíu opna fundi þar sem hlustað var eftir viðhorfi fólks, hugmyndum og ábendingum um umræðuskjalið. Verkefnisstjórnin vann svo úr niðurstöðum þeirra ábendinga sem bárust. Áætlað er að stefnan verði lögð fyrir Alþingi sem þingsályktunartillaga á næsta þingi.

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, og Hlédís Sveinsdóttir, ráðgjafi og verkefnastjóri skipuðu verkefnisstjórn um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Með henni störfuðu Bryndís Eiríksdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, og Sigurgeir Þorgeirsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri.

Hægt er að nálgast stefnuna hér  og hér á vefnum www.landbunadarstefna.is

 


Athugasemdir

Nýjast