Gestasýning Þjóðleikhússins er Ör

Baldur Trausti Hreinsson í hlutverki sínu í Ör.
Baldur Trausti Hreinsson í hlutverki sínu í Ör.

Leikritið Ör, eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur, verður sýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri 15. og 16. nóvember en sýningin er gestasýning Þjóðleikhússins. Í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar segir að leikritið ÖR sé í senn órætt, fyndið og ágengt, og spyr áleitinna spurninga um lífið og dauðann, samskipti kynjanna og leit að samastað í veröldinni.

„Ég er að skrifa gegn myrkrinu í heiminum,“ sagði Auður Ava Ólafsdóttir þegar hún hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2018 fyrir skáldsöguna Ör, sem kom út árið 2016.

Jónas Ebeneser, fráskilinn karlmaður á miðjum aldri, fær að vita að uppkomin dóttir hans, Vatnalilja, er í raun barn annars manns. Vængbrotinn og í djúpri tilvistarkreppu reynir Jónas að átta sig á hlutverki sínu í þessum heimi og skilja konur, rétt eins og Svanur, nágranni hans og kórfélagi. Í lífi Jónasar eru þrjár konur; Stella móðir hans sem dvelur á dvalarheimili og er gagntekin af tölfræði stríða, líffræðingurinn Vatnalilja sem er sérfræðingur í súrnun sjávar og innflytjandinn Maí sem starfar á dvalarheimilinu og tekst á við fortíð í stríðshrjáðu landi. En konur geta verið flóknar og margt sem þær varðar sannkölluð ráðgáta. Eða hvað á kona við þegar hún segir við karlmann að hann rekist utan í sjóndeildarhring hennar? Leikarar eru Baldur Trausti Hreinsson, Guðrún Gísladóttir, Birgitta Birgisdóttir, Pálmi Gestsson og Hildur Vala Baldursdóttir. Miðasala er á mak.is


Athugasemdir

Nýjast