Frost hannar og smíðar kælikerfi fyrir laxavinnslu Arctic Fish í Bolungarvík

Fulltrúar fyrirtækjanna við undirritun samningsins á Íslensku sjávarútvegssýningunni. Frá vinstri: D…
Fulltrúar fyrirtækjanna við undirritun samningsins á Íslensku sjávarútvegssýningunni. Frá vinstri: Daníel Jakobsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Arctic Fish, Ragna Helgadóttir verkefnastjóri byggingarframkvæmda hjá Arctic Fish, Stein Ove Tveiten forstjóri Arctic Fish, Guðmundur Hannesson framkvæmdastjóri Frosts og Hákon Hallgrímsson sölustjóri Frosts.

Kælismiðjan Frost og fiskeldisfyrirtækið Arctic Fish hafa undirritað samning um að Frost hanni og afhendi fullbúið kælikerfi til ís- og krapaframleiðslu og sjókælingar auk hráefniskælingar fyrir nýja laxavinnslu Arctic Fish í Bolungarvík.

Guðmundur Hannesson, framkvæmdastjóri Kælismiðjunnar Frosts, segir að um sé að ræða heildarlausn sem að fullu sé hönnuð hjá Frosti. Gert sé ráð fyrir afhendingu á öllum búnaði í laxavinnsluna á síðari hluta þessa árs og uppsetning og gangsetning á búnaðinum verði á fyrsta ársfjórðungi 2023.

Frost

Guðmundur Hannesson, framkvæmdastjóri Kælismiðjunnar Frosts, og Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic Fish, undirrituðu samninginn á Íslensku sjávarútvegssýningunni fyrr í þessum mánuði.

 Hin nýja laxavinnsla Arctic Fish á hafnarsvæðinu í Bolungarvík verður tekin í notkun á næsta ári. Þegar fram í sækir er gert ráð fyrir að árlega fari um 50 þúsund tonn í gegnum vinnsluna. „Við hjá Frosti erum afar ánægð með það traust sem okkur er sýnt með þessum samningi. Áralöng reynsla og þekking fyrirtækisins í framleiðslu á ís, krapa og sjókælingu með hámarksnýtni og gæði að leiðarljósi skiptir viðskiptavini okkar miklu máli. Hönnunin er þegar hafin og verður hún í starfsstöðvum okkar á Akureyri og í Garðabæ. Smíði búnaðarins verður síðan á haustdögum og við gerum ráð fyrir að uppsetning hans í Bolungarvík taki tvo til þrjá mánuði,“ segir Guðmundur Hannesson.

„Það er lykilatriði að tryggja ferskleika og gæði afurða í slátrun og öllu vinnsluferlinu. Því þurfti að vanda valið vel og tryggja að öll hönnun og búnaður væri í samræmi við kröfur og væntingar Arctic Fish. Við erum afar ánægð með að hafa valið Frost sem samstarfsaðila í þetta stóra uppbyggingarverkefni hjá okkur í Bolungarvík,“ segir Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic Fish.


Athugasemdir

Nýjast